Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Ögmundar tími er kominn.

Ég held að það sé kominn tími að skipta um forystu hjá VG, þar sem núverandi flokksforysta er hætt að standa við stefnu flokksins í nánast öllum málum. Einn maður hefur þó verið trúr stefnu flokksins það er Ögmundur. Það er kominn tími að hann taki við forystu VG.
mbl.is Málefnahópar fara yfir ályktanir VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"The untouchables"

Af hverju ganga þessir menn enn lausir, en ekki þeir sem stálu 90 miljónum frá íbúðalánasjóði? Það eru nú bara smá aurar miða við þær upphæðir sem þessir menn stálu.
mbl.is Skoða lánveitingar Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækjur Samfylkingarinnar.

Þegar ég gekk inn í kjörklefann síðast stóð ég í þeirri  trú að þau Steingrímur J Ögmundur, Svandís og Álfheiður myndu standa við þau loforð sem þau gáfu varðandi ESB fyrir síðustu kosningar.

Þið verðið aldrei kosin aftur á þing, svona drullusokkar eiga ekki heima þar!


mbl.is Blendnar tilfinningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ertu maður eða mús?

Ég skora á þig Herra Ólafur Ragnar Grímsson að neita að skrifa undir Icesave frumvarpið og fara vinna vinnuna þína sem sameiningartákn þjóðarinnar og koma út úr holunni þinni og stappa stálinu í þjóðina þína. Mér finnst þetta Icesavemál vera miklu stærra en fjölmiðlafrumvarpið sem þú hafnaðir og kom síðar í ljós að voru stór mistök hjá þér.
mbl.is Ögmundur ekki ákveðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er jólasveinninn til?

Þeir sem trúa því að hægt sé að semja um sjávarútvegstefnu ESB geta alveg eins trúað á jólasveininn samkvæmt frétt RUV.

Ekki innistæðulausir.

Þessir menn eiga fyrir þessum lúxus, og hafa unnið fyrir þyrluferðum og slíku  með hörðum höndum. Það er nú eitthvað annað enn útrásarvíkingarnir sem ferðuðust með sama hætti enn á kostnað annarra.
mbl.is Höfðingjar golfa í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klikkaði samráðsmafían?

Hvað klikkaði hjá olíufélögunum, er samstarfið eitthvað að fara í vaskinn? Ég fékk bara tár í augun yfir því að Olís ætli að taka þessa hækkun á sig.
mbl.is Olís lækkar lítrann aftur um 12,50 kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látum "Rottugengið" semja um Icesave.

Samninganefndin sem samdi um Icesave við Hollendingana og Breta var ekki að vinna vinnuna sína. það þýðir ekkert að senda diplómata í hákarlskjaftana sem vinna fyrir Gordon Brown og hina ESB nýlenduherrana.  Hvernig væri að senda rottugengið( Sigurjón Árnason,Sigurður Einarsson,Ólafur Ólafsson,Jón Ásgeir og Björgólf Thor. Þessir menn eru sko engin lömb að leika sér við eins og við höfum sjálf heldur betur fengið að kynnast. En við skulum bjóða rottugenginu þann díl að ef þeir losi okkur undan Icesave skuldunum án þess að það kosti okkur  alla þessa milljarða þá geti þeir gengið hér um óáreittir.

En í alvöru talað, Við eigum að vísa Icesavedeilunni til dómsstóla, það mun taka mörg ár fyrir dómsstóla að komast að niðurstöðu sem gefur okkur tækifæri til þess að rétta okkur af, og byggja upp markaði í Asíu Arabalöndum og Japan. síðan getum við athugað með upptöku dollars. honum fylgja engin afarskilmálar einsog Evru.

 


mbl.is Icesave-samningar birtir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjargaði 17 júní.

Eftir ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra Íslands í morgunn, var búið að eyðileggja fyrir mér 17.júní. Ég hef aldrei heyrt eins ömurlega ræðu á minni lífsleið og hef ég nú heyrt þær margar. En Íslenska landsliðið í handbolta sá um að koma mér aftur í þjóðhátíðarskap með frábærri skemmtun og frábærum leik.
mbl.is Ísland á EM með stórsigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Kjartan Birgisson
Kjartan Birgisson
Kjaftur berst af fullum krafti gegn landráðamönnum og föðurlandssvikurum.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband